Saturday, February 7, 2009
Opnun dauðans
Ég er sérstakur áhugamaður um hvernig hljómsveitir byrja tónleika sína, eða opna prógramið eins og það er stundum kallað. Þessi byrjun, á tónleikum Pearl Jam í Madison Square Garden, er hrikalega svöl. Opnun dauðans, svo maður noti það ágæta áhersluorð.
Friday, February 6, 2009
Forsendur brostnar?
Staðgreiðsluverð á áli er nú 1.408 dollarar. Það fór hæst í 3.300 dollara í júlíu fyrra. Í samningum Landsvirkjunar og Alcoa vegna álvers á Reyðarfirði er miðað við að orkusalan skili 11,9 prósent arðsemi ef heimsmarkaðsverðið er 1.550 dollarar. Lögin um framkvæmdina voru meðal annars samþykkt á þeirri forsendu að kostnaðurinn við framkvæmdina yrði 96 milljarðar og arðsemin 11,9 prósent, eins og fyrr segir. Ljóst er, og hefur verið greint frá opinberlega, að heildarkostnaður við Kárahnjúkavirkjun er áætlaður 140 til 150 milljarðar. Miklu hærri en áætlað var í fyrstu.
Sanngjarnt er því að spyrja: Er forsendur fyrir áætlaðari arðsemi brostnar?
Eitt enn: Nú er talið að óseldar birgðir af áli í heiminum séu á milli tvær til þrjár milljónir tonna. Það er nær öll framleiðsla á Íslandi í tvö til þrjú ár. Fyrirtæki hafa verið að loka álverum um allan heim, þar á meðal Alcoa.
Sanngjarnt er því að spyrja: Er forsendur fyrir áætlaðari arðsemi brostnar?
Eitt enn: Nú er talið að óseldar birgðir af áli í heiminum séu á milli tvær til þrjár milljónir tonna. Það er nær öll framleiðsla á Íslandi í tvö til þrjú ár. Fyrirtæki hafa verið að loka álverum um allan heim, þar á meðal Alcoa.
Thursday, February 5, 2009
Wednesday, February 4, 2009
Ekki gera okkur þetta
Fólk sem vinnur við að setja lög í umboði þjóðarinnar hefur að undanförnu eytt dýrmætum tíma í að rífast um hvort ríkisstjórn sem hefur tveggja mánaða starfstíma eigi að stefna að því að ýta undir nýtt álver eða ekki (Það verið að loka álverum út um allan heim og markaðsverð í lágmarki). Þá hafa þingmenn einnig tekist á um hvort hvalveiðar séu æskilegar. Framsóknarkonan Siv Friðleifs kom fram í sjónvarpsviðtali og sagði framsóknarmenn ekki geta stutt það að veiðileyfi verði dregin til baka. Það verður bara að segjast eins og er, að íslenskir þingmenn eru margir hverjir ófókusaðir, latir og pópúlískir, miðað við þær aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu. Bara það að leyfa sér að nefna eitthvað annað en bráaðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki - til þess að reyna að eftir fremsta megni að afstýra þjóðargjaldþroti - er sönnun þess að flokksmenn eru nú farnir að taka hagsmuni sína fram yfir hagsmuni almennings, í ljósi kosninga 25. apríl. Það er eiginlega ekki hægt að segja neitt annað en: ekki gera okkur þetta. Þingmenn eiga að vinna á sólarhringsvöktum við að bjarga því sem bjargað verður. Ekki síst í ljósi þess að löggjafarvaldið gjörsamlega brást þegar kom að rótum vandans í bankakerfinu.
Tuesday, February 3, 2009
They are not going to pay

Ástandið í Bretlandi er að verða hrikalegra með hverjum deginum. Robert Peston, viðskiptaritstjóri BBC, setti fyrir rúmlega 20 mínútum inn þessa færslu, sem mér finnst vera óhugguleg lesning. Sérstaklega þegar tekið er mið af því að bankakerfið í Bretlandi var þegar kreppan skall á 3,5 sinnum stærra en landsframleiðslan, sem er með því mesta í heimi. Nú hafa stærstu bankar Bretlands verið þjóðnýttir að stórum hluta.
Líklega er bara tímaspursmál hvenær Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands þarf að stíga fram og segja: Við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna. Þá stíga fjármálaráðherrar annarra landa fram á blaðamannafundum og segja: Belive or not, they are not going to pay. Og síðan koll af kolli, en það er nú líklega worst case scenario.
Skúbbið ofmetið
Merkilegt sem Thomas E. Ricks, blaðamaður Washington Post gagnvart Pentagon, segir í inngangi að endurútgáfu af Fiasco, frábærri bók hans um hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak. Hann segir: Þegar kemur að stórviðburðum þá er skúbbið ekki aðalatriðið. Það er heildarmyndin sem þarf að draga upp; það er follow-up ið sem öllu skiptir. Ricks segir Fiasco vera tilraun til að draga upp heildarmynd af stríðinu í Írak, sem vitaskuld er klúður, fíaskó.Ég held að það sé mikið til í þessu hjá Ricks, sem stundum er sagður fremsti blaðamaður heims. Margfaldur Pulitzer vinningshafi. Ég held að það sé öllum ritstjórnum hollt á Íslandi að hafa þetta heilræði Ricks bak við eyrað í umfjölluninni um bankahrunið.
Monday, February 2, 2009
Lag dagsins
Ég hef aldrei verið neinn rosalegur Incubus maður, en þetta lag frá sveitinni er einfaldlega frábært. Þó þetta sé orðin klysja þá eru þetta samt pjúra gæði.
Subscribe to:
Posts (Atom)